Níu mánaða uppgjör

Fjármunamyndun  í sögulegum hæðum

Helstu atriði árshlutareiknings

  • Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 153,9 milljónum USD (20,0 mö.kr.), en var 92,4 milljónir USD á sama tímabili árið áður og hækkar því um  66,6%. 
  • Hagnaður tímabilsins var 102,6 milljónir USD (13,3 ma.kr.), en var 61,2 milljónir USD á sama tímabili árið áður.
  • Rekstrartekjur námu 396,9 milljónum USD (51,6 ma.kr.) og hækka um 69,0 milljónir USD (21,0%) frá sama tímabili árið áður.
  • Nettó skuldir lækkuðu um 138,4 milljónir USD (18,0 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok september 1.537,4 milljónir USD  (199,9 ma.kr.).
  • Handbært fé frá rekstri nam 239,1 milljón USD (31,1 mö.kr.), sem er 40,8% hækkun frá sama tímabili árið áður.

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Rekstrarumhverfi fyrirtækisins hélt áfram að batna á þriðja fjórðungi ársins. Hagur viðskiptavina hélt áfram að vænkast, en þeir hafa jafnt og þétt aukið raforkunotkun sína og keyra flestir á fullum afköstum, auk þess sem spurn eftir framleiðslu þeirra hefur náð fyrri styrk og er í mörgum tilvikum meiri en hún var í upphafi faraldursins. Raforkukerfi Landsvirkjunar nálgast það nú að vera fullnýtt.

Meðalálverð á tímabilinu var nærri helmingi hærra en á sama tíma árið áður, auk þess sem raforkuverð á Nord Pool markaðinum fimmfaldaðist, eftir sögulega lágt verð í fyrra. Þar sem hluti samninga okkar við stórnotendur er bundinn við þessar tvær breytur hækkuðu tekjur mikið, eða um 69 milljónir dollara miðað við sama tímabil árið 2020.

Afkoma fyrstu níu mánuðina ber þessa bata greinileg merki. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði sem við lítum til við mat á rekstri fyrirtækisins, hækkaði um tæplega 67% frá sama tímabili árið 2020. Nettó skuldir héldu áfram að lækka og voru í lok fjórðungsins 18 milljörðum króna lægri en um síðustu áramót.

Rekstur aflstöðva gekk vel á tímabilinu. Innrennsli í miðlunarlón Landsvirkjunar á Suðurlandi var þó  með minnsta móti í sumar. Sem fyrr var mikill kraftur í nýsköpunarstarfi í tengslum við fyrirtækið víðs vegar um land, til að mynda undirbúningi að rafeldsneytisframleiðslu, sem getur orðið lykilþáttur í því að gera þjóðina óháða jarðefnaeldsneyti, en vinnsla Landsvirkjunar á endurnýjanlegri orku er sem fyrr mikilvægt framlag til loftslagsmála.“

Viðhengi

Landsvirkjun