Félagsbústaðir – Árshlutareikningur 30.9.2021

Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.9.2021

Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2023 á fundi sínum í dag 25. nóvember.

Hagnaður vegna hækkunar á eignasafni 

Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 13.143 m.kr. og er hann allur tilkominn vegna hækkunar á virði fasteignamats eigna félagsins. (Hagnaðurinn verður ekki innleystur nema með eignasölu.)

Sjóðstreymi Félagsbústaða sýnir að handbært fé frá rekstri var 905 m.kr. samanborið við 482 m.kr. árið áður. Afborganir langtíma lána námu 815 m.kr. Helstu kennitölur reikningsins eru:

  • Rekstrartekjur ársins námu 3.793 m.kr.
  • Afkoma fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 1.759 m.kr. eða 46,4% af rekstrartekjum
  • Matshækkun fjárfestingareigna á árinu námu 13.825 m.kr.
  • Virði fjárfestingareigna í lok ársins er 116.112 m.kr.
  • Eigið fé í lok tímabilsins er 61.692 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall í lok ársins er 52,7%
  • Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils nema 50.431 m.kr.

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða fyrstu 9 mánaða ársins 2023 námu 3.793 m.kr., er það aukning um 10,3% milli ára sem skýrist af hækkun leiguverðs vegna verðlagsbreytinga og stækkun eignasafnsins. Rekstur og viðhald eigna hækkar um 90 m.kr. eða um 5,8% á milli ára. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBIT%) er 46,4% samanborið við 44,4% á sama tíma árið 2020.

Eignasafn og efnahagur

Heildareignir félagsins námu 117.595 m.kr. í lok þriðja ársfjórðungs en þær jukust um 17,1% frá ársbyrjun. Fjárfestingareignir jukust um 17,2% eða 17.009 m.kr., fjárfest var fyrir 2.558 m.kr. og matsbreyting nam 14.451 m.kr. Heildarskuldir nema 51.158 m.kr. og hafa hækkað um 2.661 m.kr. á árinu. Eigið fé hækkaði um 26,9% á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 52,7% en 48,6% í lok árs 2020.

Skuldabréfaútboð

Félagsbústaðir eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgja þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru þær aðgengilegar á vefsíðu þess ásamt þeim lögum sem gilda um félagið.

Í mars 2023 stækkaði félagið félagslega skuldabréfaflokkinn FB100366 SB. Hann er verðtryggður með ársfjórðungslegum jöfnum greiðslum til lokadags þann 10. Mars 2066. Skuldabréfaflokkurinn ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið gefnar út 13.600 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum. Flokkurinn hefur verið tekinn til viðskipta á Sustainable Bond markaði Nasdaq Iceland.

Þróun eignasafns

Félagsbústaðir keyptu 65 fasteignir og seldu 7 fasteignir á fyrstu 9 mánuðum ársins 2023 en áform voru um að fjölga leigueiningum um 93 á tímabilinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, [email protected], sími 520 1500

Viðhengi

F lagsb sta ir hf